Um Aurora
Aurora er netverslun sem leggur áherslu á að aðstoða fólk, sérstaklega konur, við að skapa aðstæður sem hjálpa þeim að vaxa og dafna.
Með vörunum viljum við aðstoða viðskiptavini okkar við að öðlast aukna vellíðan, hamingju, sjálfsumhyggju og aukið sjálfstraust.
Vörurnar eru ýmist til þess að hjálpa þér að skapa þær aðstæður sem þú þarft, í þínu umhverfi, til þess að láta ljós þitt skína og til að hjálpa þér að skapa aðstæðurnar innra með þér, til að efla þig og styrkja, svo þú sért enn betur í stakk búin til að láta ljós þitt skína.
Sara Tosti er eigandi Aurora. Sara hefur lengi haft áhuga á sálfræði, hegðun og líðan fólks. Þar að auki er henni mikilvægt að efla konur, hjálpa þeim að finni sína rödd, sinn innri styrki og hjálpa þeim að skapa aðstæður í sínu lífi sem fá þær til að vaxa og dafna. Að hjálpa konum að auka sjálfstraust, komast í andlegt jafnvægi, auka hamingju og vellíðan er eitthvað sem hún brennur fyrir.
Við konur erum allar einstakar á okkar magnaða hátt og eigum allar skilið að láta ljós okkar skína!
Orðið aurora þýðir norðurljós. Norðurljós koma eingöngu fram við ákveðin skilyrði og aðstæður.
Markmiðið hjá Aurora netverslun er að hjálpa þér að skapa þær aðstæður sem þú þarft til að láta ljós þitt skína.