Skilmálar


Upplýsingar um fyrirtækið

Aurora netverslun (Sara Tosti, kt. 200885-3259) / 220 Hafnarfjörður / sara@auroracoach.is

 

Aurora netverslun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur innan Höfuðborgarsvæðis getur fengið vöruna senda beint heim að dyrum, þeir viðskiptavinir sem eru utan Höfuðborgarsvæðisins geta fengið vörurnar sendar í pósti. Viðskiptavinir geta einnig fengið að sækja vörur til okkar ef þeir vilja.

Rafrænar vörur eru sendar á netfang kaupanda þegar greiðsla hefur gengið í gegn.

Vörur sem eru prentaðar eftir eftirspurn (print on demand) hafa lengri afhendingartíma þar sem þær koma erlendis frá.

 

1. Sending

Heimsending upp á 1000 kr. bætist við verð þegar gengið er frá greiðslu, ef senda á vöru erlendis þá bætast við 2.500 kr. þegar gengið er frá greiðslu. Allar vörur eru sendar heim að dyrum með Póstinum, sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús.

Kjósi viðskiptavinur að sækja vöruna í Hafnarfirði þá gengur það að sjálfsögðu líka og kostar ekki aukalega.

 

2. Sækja

Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 1-3 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar.

 

Afhending pantana fer fram í Hafnarfirði. Pantanir eru afhentar eftir samkomulagi.

 

 

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.

Aurora netverslun áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

 

 

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru  til eiganda netverslunarinnar í Hafnarfirði eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.

Rafrænum vörum fæst ekki skilað eða skipt.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðslu ef þess er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.